B.08 Miðstöð norðurslóðamála
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Pétur Ásgeirsson, utanríkisráðuneytinu - [email protected]
Embla Eir Oddsdóttir - [email protected]
Verkefnið
Markmið: Að staða Akureyrar sem miðstöðvar norðurslóðamála á landsvísu verði styrkt og samstarf þeirra fjölmörgu aðila sem hafa aðkomu að málaflokknum eflt.
Stutt lýsing: Stutt verði við starfsemi Norðurslóðanetsins varðandi stafræna sókn, upp¬bygg¬ingu samstarfsnets og þátttöku í alþjóðlegum rannsóknarverkefnum..
- Ábyrgð: Utanríkisráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Norðurslóðanetið.
- Dæmi um samstarfsaðila: Önnur ráðuneyti, landshlutasamtök sveitarfélaga og sveitarfélög.
- Tímabil: 2022–2024.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Stefna Íslands í málefnum norðurslóða.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 9, 13 og 17, einkum undirmarkmið 9.5, 13.2 og 17.16.
- Tillaga að fjármögnun: 9 millj. kr. úr byggðaáætlun.