Verkefni sveitarfélaga
Ráðuneytið tekur árlega saman yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga, skv. 1. mgr. 7. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011. Yfirlitinu er ætlað til leiðbeiningar fyrir sveitarfélög við stefnumótun og áætlanagerð ásamt því að auðvelda umræðu og yfirsýn yfir skyldur og hlutverk sveitarfélaga.
Í yfirlitinu eru lögmælt verkefni sveitarfélaga flokkuð eftir málaflokkum og hvort um lögskyld eða lögheimil verkefni er að ræða. Verkefni eru lögskyld ef sveitarfélögum er skylt að rækja þau. Í lögheimilum verkefnum felst að sveitarfélag hefur svigrúm til þess að ákveða hvort verkefninu er sinnt. Ef sú ákvörðun er tekin gildir um verkefnið tiltekinn lagarammi.
Yfirlitið hefur ekki gildi sem sjálfstæð réttarheimild og ráðast skyldur sveitarfélaga ekki af því heldur af viðkomandi lögum. Yfirlitið getur breytingum eftir því sem við á og er öllum frjálst að koma ábendingum á framfæri. Ráðuneytið tekur við ábendinum um efni og form yfirlitsins í netfangið [email protected].
- Yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga (júní 2022)
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Tölfræði
Samtök sveitarfélaga
Kæruleiðir
Kærur til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins á grundvelli 111. gr. sveitarstjórnarlaga er hægt að senda rafrænt gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins, minarsidur.stjr.is, eða á pdf-formati og senda ráðuneytinu:
Sveitarstjórnarkosningar
Staðarmörk sveitarfélaga
Sveitarstjórnarmál
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.